Eftirfarandi skilmálar gilda fyrir Ögn verslun (Mömmuknús ehf.), kt: 570123-0920, VSK númer: xxxxxx varðandi öll viðskipti á vefsíðunni www.ogn.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur fyrir Ögn verslun (Mömmuknús ehf.). annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.
Upplýsingar og verð
Ögn verslun áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir og endurgreiða viðskiptavini vegna rangra verðupplýsinga eða ef vara reynist uppseld. Sé vara ekki til á lager verður haft samband við kaupanda. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara þar til pöntun hefur verið gerð t.d. vegna gengisbreytinga ásamt verðbreytingum hjá birgjum.
Öll verð á vefsíðu okkar www.ogn.is er með 24% virðisaukaskatti. Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti. Einnig er hægt að velja um að sækja samkvæmt samkomulagi og hægt er að fá nánari upplýsingar í tölvupósti eða samfélagsmiðlum okkar.
Greitt á netinu
Hægt er að greiða fyrir vörur í vefverslun okkar með eftirfarandi hætti:
Millifærsla: Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja það að millifæra. Millifærslan skal berast innan við 24 tíma frá pöntun. Reikningsnúmer er 0370-26-570107 og kt. 570123-0920.
Greiðslukort: Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay. Tekið er við kreditkortum og debetkortum. Einnig er hægt að greiða með Apple Pay.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar varan er afgreidd frá okkar lager.
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandsspósts um afhendingu vörunnar.
Ögn verslun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá okkur til kaupanda er tjónið á ábyrgð Íslandspósts en á ábyrgð kaupanda að fylgja því eftir að fá það bætt. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
Skilaréttur og endurgreiðslufrestur
Viðskiptavinir hafa 14 daga skilafrest að því tilskildu að varan hafi ekkert verið notuð og að henni sé skilað í fullkomnu standi.
Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með vöruskilum. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin til okkar. Athugið að skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Ósóttar pantanir
Hafi vara ekki verið sótt innan 3 mánaða eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu. Ögn verslun áskilur sér rétt á að endurgreiða ekki ósóttar pantanir.
Gölluð vara
Reynist vara gölluð eða kaupandi er á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum vöruna sé þess óskað. Við viljum að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með kaupin og þjónustuna sem við veitum. Við þiggjum ábendingar á netfangið ognverslun@gmail.com. Vísað er til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup hvað þetta varðar.
Persónuupplýsingar
Allar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslur. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
Lög og varnarþing
Kaup á vörum og skilmálar vegna þeirra eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.